miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Þið munið að ég var búin að panta tvær vikur lágmark í hvíld þegar ég væri hætt að vinna, bara svona til að hvíla mig og undirbúa því ég vann svo lengi...

Núna nenni ég þessari hvíld ekki lengur, er að ég held búin að þvo hvert einasta stykki hérna á heimilinu, tók til í nærfataskúffunni í gær og það endar með að ég fer að litaraða í fataskápinn okkar!

Gekk síðan Borgartúnið endilangt inn í Laugarnesið og sé fram á fleiri æfingar á næstu dögum:)

Já ég er bara orðin of spennt...er maður ekki smá klikkaður að hlakka til að horfa á Fyrstu skrefin á eftir, að vísu verða Hanna, Sara og Camilla sem ég þekki í þættinum þannig að ég hef ástæðu!

Ég þarf samt nauðsynlega að komast á Tapas á morgun, það má ekki klikka!

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Fyrst ég er bara að hangsa þá klára ég glansmyndapakkann...

Strax byrjuð að mala í símann...
Og að taka róbó takta, alltaf í sífelldum æfingum...
Hvað ætli þessi prakkari hafi verið að fara að gera?
Síðan steypti hann sér víst yfir rimlana og í hjónarúmið, Ottó átti að svæfa hann en í flestum tilfellum var Ottó steinrotaður og Andri kom fram aftur!

Gaman að þessu:)





Ég hélt að partýið væri að byrja í nótt...

en svo hætti það bara undir morgun. Ég sá fyrir mér að þetta yrði þá febrúarbarn á endanum en núna lítur út fyrir að marsbúinn muni standa.

Ætla að taka kríu...

mánudagur, febrúar 26, 2007

Útskriftarveisla hjá Keðjunni...

Viðar Hólmsteinn
Eina myndin sem Keðjan var ekki eins og fífl!
Rex og Viddi
Tiger-ferlíkið og Andri red red wine..
Og þeir félagar..
-Linda-

Nokkrar myndir úr vetrarfríi og frá helginni...

Parið ásamt fleirum í heimsókn á Kambó
Hitt "parið" bauð okkur í dýrindis þriggja rétta máltíð
og Mappa og Heiðari líka
Fór í heimsókn til Matthildar Birtu...hún er svoooo sæt mús

sunnudagur, febrúar 25, 2007

Þið ættuð að sjá breytinguna á Hjallaveginum...

Skrýtið að hafa búið þarna og maður þekkir varla íbúðina aftur. Baðherbergið þar sem eldhúsið var, eldhús þar sem svefnherbergið var og búið að umturna loftinu okkar Andra...

Framkvæmdirnar hans Lottós hafa greinilega komið af stað enn meiri framkvæmdum. Það gekk nú á ýmsu þegar þakið var rifið af og allt hækkað upp og ég og Lottó "hjálpuðumst" að við það að flísaleggja, Mappinn þræddi rafmagnið og svo var boðið í áramótapartý og það rétt náðist að koma sófa og stólum fyrir haha...

Ágætis prís á þessu...

föstudagur, febrúar 23, 2007

Húllum hæ á Kambó...

Það var aldeilis margt um manninn á Kambó í gær, Bronsbumban og frú, Rex og Keðjan og parið góða. Trúmál og heimsmálin ásamt ýmsu öðru voru rædd og við erum svona nokkurn vegin komin með lausnina á því hvernig má bjarga heiminum...

Mæðró gekk vel að vanda og barnið fastskorðað og tilbúið í fæðingu whenever, ljósan mín ótrúlega ánægð með hvað allt er búið að ganga vel og hún studdi það heilshugar að fara upp á Skaga. Ég er allaveganna búin að melda mig þangað ef það gengur upp. Hún vildi meina að krílið væri orðið svona 13-14 merkur. Bara meðalljón ef það reynist rétt...nú er bara að bíða og sjá hvenær það ákveður að hefja ferðalagið mikla!

Það er aldeilis prógram á mér svona í orlofi, var að koma úr fótsnyrtingu, litun og plokkun og síðan er ég aðeins að fara að stússast út af vöggunni sem við verðum með. Í kvöld er dinner a la Hjalti og co, dansjóga í hádeginu á morgun, flakkarafundur með HDW og RÓ og útskrift hjá Viðari um kvöldið...mjög skrýtið að vera bara svona að dúlla sér í ýmsu og hafa engum þannig skyldum að gegna.

Tók strætó heim frá Hlemmi núna rétt í þessu og mikið er nú þægilegt að sitja í srætó og hlusta á góða tónlist og horfa út um gluggann. Þetta er hægt þegar maður er ekki í neinu stressi og er auðvitað miðsvæðis...

Góða helgi kæru vinir.

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Fjölbreytni...

Ég er búin að fá mér tvisvar að borða í dag, í fyrra skiptið hálft múslírúnstykki og kókoskúlu úr jóa, skolað niður með kókómjólk, núna í annað skiptið, hinn helming af múslístykkinu og önnur kókoskúla, skolað niður með kóki! Hollustan í fyrirrúmi...

Og vorið er komið, ætla að skella mér í kraftgöngu til langömmu með ipodinn í botni og skella mér síðan í jóga. Það er alveg fáránlega skrýtið að vera ekki að gera nokkurn skapaðan hlut..

Njótið veðurblíðunnar!

Afmælisbarnið...


Hún Ragna góðvinkona er 24 ára gömul í dag! Innilega til hamingju með daginn og njóttu þess nú í botn að vera einu sinni heima hjá þér á afmælisdaginn. En eins og margur hver veit er Ragna margfaldur Íslandsmeistari í badminton og þarf því ósjaldan að fórna afmælisdögum fyrir fluguna...

Myndin er síðan ég fór með henni á mót í Birmingham sem Team Manager from Iceland. Þarna lékum við á alls oddi og ég að sjálfsögðu sem þjálfari á hliðarlínunni. Við gerðumst meira að segja svo grófar að skella okkur í klippingu þar sem ég tók pönkarann á þetta...

Annars vaknaði ég í morgun með rosa skrýtna verki, hugsaði strax með mér nei ég er ekki búin að hvíla mig neitt! Fór fram og settist á bláa boltann og tók smá jógatakta...þetta var samt greinilega bara smá æfing en góð engu að síður. Núna er ég bara heimavinnandi húsmóðir í vetrarfríi:)

Lilly

þriðjudagur, febrúar 20, 2007


Ég á bara eftir að vinna í einn heilan dag...


og síðan ekki neitt í að minnsta kosti 8 mánuði, vá hvað það er skrýtið!


Þessi eini dagur er starfsdagur kennara og því kvaddi ég börnin í dag. Þau voru sæt í sér að vanda og bökuðu tvær kökur, gáfu mér box með fleiri heimatilbúnum kökum, Mínu mús blöðru og kort með myndum af þeim öllum:)


Á fimmtudag og föstudag er vetrarleyfi kennara og síðan byrja ég í fæðingarorlofi frá með mánudeginum 26. febrúar, þá komin 39 vikur á leið, ekkert smá heppin að hafa haldið svona góðri heilsu allan tímann og unnið þetta lengi. Get sko ekki kvartað:) En ég vil nú þakka kírópraktornum mínum sem vill meina að þetta eiga eftir að skila 40% styttri fæðingu...sjáum til með það og svo auðvitað jóganu sem ég er búin að vera í síðustu 15 vikur, enda sjáið þið að maður er með jafnvægið í lagi;)
Á föstudaginn fer ég í mæðrótjékk og það verður spennandi hvað kemur út úr því.
Þar til næst...
Libba

sunnudagur, febrúar 18, 2007

Glansmyndir í baði...
Andri Fannar sprækur

Ég var víst eitthvað hrædd við að fara ofan í vatnið en vildi alveg hafa það í bala og sitja svo bara í baðinu!

Lítil handklæðastelpa

Og svo ef þið viljið ímynda ykkur AFO overweight!




föstudagur, febrúar 16, 2007

Ég var að koma af fæðingardeildinni...


á Skaganum, haha fenguð þið sjokk:) Við skelltum okkur upp á Skaga að heimsækja afa hans Andra og konuna hans en hún er einmitt ljósmóðir á Skaganum og var svo elskuleg að sýna okkur deildina í díteils og ég er að segja ykkur það ég tel að það séu svona 80% líkur á að ég fari þangað...

Mikið svakalega var þetta huggulegt og elskulegt allt saman. Og Sigurðarsvítan, ég ætla ekki einu sinni að lýsa henni:) Og þarna getur maður tekið sængurleguna alveg eins lengi og maður vill í ró og næði. Eina fyrirstaðan er náttúrulega að maður þarf að keyra dáldinn spöl en ég er alvarlega að velta þessu fyrir mér, þarf ekkert að ákveða núna en þetta er mjög góður kostur held ég.

Farin í bæli með örlítinn bjúg og lasinn húsbónda mér við hlið!

Foreldradagur að kveldi kominn...


Gekk allt saman alveg ljómandi vel hjá mér og Selmu. Toppmæting og almenn ánægja. Ég hef gaman að svona dögum, gaman að hitta foreldra, sjá hverjum börnin líkjast o.s.frv. Ég ætla að vera foreldri sem mætir alltaf á svona viðburði...


Alltaf gott samt þegar það er komin helgi og maður getur slappað almennilega af, Kennópíur og börn í heimsókn á morgun og afmæli hjá Rex um kvöldið...

fimmtudagur, febrúar 15, 2007



Þetta gekk allt saman alveg ljómandi vel...ungir piltar nú til dags ganga líka svo afskaplega vel um:)

Farin í bað að láta líða úr mér...

Fjúff...

Ég er að fá alla strákana úr umsjónarbekknum mínum hingað heim á eftir. Við ætlum að horfa á spólu saman, en fyrst förum við á Pizza Hut. Ég er búin að plata Andra til að vera heima ef allt fer úr böndunum en ég held að þetta reddist! 13, 13 ára guttar:)

Foreldradagur á morgun og kennslustofan orðin spikk and span...

4 vinnudagar eftir koma svooooo

Þannig að ég er farin í jóga til að ná smá slökun fyrir þetta!

Lilly

miðvikudagur, febrúar 14, 2007


Hrós dagsins...


Ég er búin að vera að hrósa krökkunum dáldið undanfarið, svona aðeins að peppa þau upp áður en ég hætti. Við gerum nefnilega alltof lítið af því að hrósa finnst mér...


Og þess vegna ætla ég að hrósa Andra Fannari hérna á síðunni minni. Ekki það að hann lesi hana oft en hann á þetta hrós skilið.


1. Undanfarin svona 15 kvöld er ég búin að fá fótanudd fyrir svefninn en þá sef ég alltaf svo ótrúlega vel:) Segið svo að parakvöldið hafi ekki verið að gera sig! Og þetta er sko almennilegt nudd.


2. AFO er þekktur fyrir það að ganga vel frá í eldhúsinu og finnst það bara nokkuð gaman enda af myndunum að dæma var hann mikið fyrir pottana þegar hann var yngri. Þetta hefur hann líka frá móður sinni en hún ól hann upp í eldhúsinu:) Mér finnst líka alveg fínt að ganga frá í eldhúsinu og geri það mjög oft og helst get ég ekki farið að sofa nema vaskurinn sé tómur. Það kemur þó fyrir að hann er það ekki en þá veit ég bara að Andri gerir þetta þegar hann tekur sér pásu frá akademískum vinnudegi. Nema hvað að í gær var fjall í vaskinum því uppþvottavélin var líka full og þarna leyndist líka panna, pottur og fleira leiðindadótarí. Svo núna þegar ég kem heim úr vinnunni er búið að taka allt úr vélinni og ganga frá hverju einasta stykki sem var í vaskinum. Þetta er afar þægilegt fyrirkomulag og ég er mjög glöð með þetta. Og tekið skal fram að þetta var gert alveg óumbeðið...
Keep up the good work!

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Taka tvö í glansmyndunum...

Ekki mikið stærri en svitalyktaeyðir en farin að standa og tala á fullu...

Andri breyttist fljótlega í súmóglímukappa...

Þessir stólar voru greinilega aðaltrendið í þá daga...

og auðvitað geðveikt teppi og sófi:)

Annars er ég alveg hrikalega spræk þessa dagana og ekki bilbug á mér að finna, smá fyrirvaraverkir á nóttinni en ekkert til að tala um. Kannski af því að ég veit að ég á bara eftir að vinna í 6 daga, fáránlega lítið alveg!
-Linda litla-

mánudagur, febrúar 12, 2007

Afmælisbarn dagsins er hún Harpa "litla" systir mín en hún er orðin 18 ára gömul stúlkan!

Ég sendi henni hamingjuóskir og verð mætt í kökur um eftirmiðdaginn:)

Njóttu dagsins mín kæra...

Við hressar á ættarmóti í sumar með ömmu og mömmu

sunnudagur, febrúar 11, 2007

Glansmyndir fortíðarinnar...

Við vorum að skoða gamlar myndir af okkur þegar við vorum yngri og veltum í leiðinni fyrir okkur hvernig barnið gæti mögulega litið út. Á þessum myndum erum við að vísu orðin frekar stór en af þeim að dæma vorum við bæði frekar miklir grallarar!

AFO var víst frekar trylltur í potta...

Ég með prump og kúkabrandara...eins og enn þann dag í dag!


Vegna mikilla eftirspurnar...36 vikur 4 dagar


Og ein hressandi af okkur sem erum bara orðin þónokkuð spennt fyrir þessu öllu saman!

Verð með fleiri óborganlegar glansmyndir á næstu dögum:)


Móðurfjölskyldan mín er þekkt fyrir mikið langlífi og hérna má sjá systkini langömmu minnar ræða um aldur sinn og þau eru svona nokkurn veginn með tölurnar á hreinu. Hún langamma verður síðan 100 ára í sumar og ég var einmitt að hugsa um það áðan að ég verð að senda henni bréf sem allra fyrst. Það er nú kannski ekki skrýtið að fólk ruglist aðeins í tölunum komið á þennan aldur:)