- Flytja
- Mæta í staðlotu í skólanum
- Fara til útlanda
Allt frekar stórir viðburðir að mínu mati og bækurnar sem ég er að fara að lesa ó men þær eru þykkar og á ensku! En það reddast líkt og allt...
Harpa var ansi lúmsk og talaði um einhver íþróttameiðsl í vikunni en skaut síðan systrum sínum ref fyrir rass og kom rúmum þremur mínútum á undan okkur í mark, Svava var 15 sek. á undan mér og ég rak síðan lestina með dáldið þungum skrefum þarna í lokin eins og AFO orðaði það en hann var svo elskulegur að smella af mér mynd þarna í lokin;)
Ég verð þó að viðurkenna að þegar hlaupið var hálfan flaug í gegnum hugann á mér hvað ég hefði eiginlega verið að pæla þegar ég tók ákvörðun um að fara í þetta, lítið sem ekkert æfð og með ekkert úthald, en þarna sýndi það sig og sannaði að keppnisskapið og hugarfarið kemur manni ansi langt! Takk allir fyrir stuðninginn sem komu að horfa á:)
Menningardagurinn var síðan mjög skemmtilegur og við röltum um bæinn og hittum mann og annan, brögðuðum á blóðbergsdrykk Haffa, hlustum á Siggu syngja og enduðum síðan daginn á því að sjá Megas á Miklatúni....
Þannig að núna þarf að:
Hvaðan kemur allur þessi þvottur? Mætti halda að við værum 30 en ekki 3!
Annars er ég með rosalega mikla tannholds- eða kinnholubólgu sem er alveg rosalega pirrandi...urrrrrr
Fór í IKEA áðan, merkilegt hvað maður nær alltaf að kaupa eitthvað allt annað en maður ætlaði, ég náði samt að takmarka mig en þurfti líka að skilja allskyns dót eftir sem ég hafði sankað að mér!
Ein hérna líka af 5 mánaða skvísunni með fljótandi augun sín!
Í ár verður aðalkvöldið á laugardeginum og boltinn því á sunnudagsmorgni. Á laugardagskvöldinu verður einmitt hin margrómaða brenna og fleira skemmtilegt. Margir eru þó búnir að skrá sig frá föstudegi og verðum við fjölskyldan mætt þá. Ef ég væri ekki með þetta blogg væri ég pottþétt búin að gleyma öllu sem ég hef gert! Eða svona mestmegnis. Stundum er ég alveg ha? hvað var þetta aftur...
og hér er ekki brjóstaþoku eða svoleiðis álíka bulli um að kenna, ég þjáist ekki af því annars myndi ég ekki muna allt sem ég man eftir...